Færsluflokkur: Bloggar

GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN

GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN

PASSA SIG NÚ AÐ SLASAST EKKI - EKKI MIKIÐ


BESTA HEILBRIGÐISKERFIÐ Í HEIMI?

brátt mun ég hætta í vinnu sem skurðhjúkrunarfræðingur á landspítala háskólasjúkrahúsi, með áköfum trega. hvers vegna að hætta þá? ef einhverntíman er tími til að hætta þá er það núna. með mikilli vissu get ég meira að segja sagt við fólk - passa sig ekki fara þarna inn þú lendir bara í veseni, því það er engin þarna inni sem getur hjálpað þér. ég er nefnilega ekki bara ein að hætta heldur níutíuogfimm skurð og svæfingahjúkrunarfræðingar líka. eftir verða uþb tíu hjúkkur á þremur skurð og svæfingadeildum stærsta spítala landsins, spítala sem heldur að hann geti allt án þess að hlutirnir kosti neitt. á mínum stutta og ágæta starfsferli á þessu hæli hef ég aldrei heyrt annað en að hér eigi að SPARA og aftur SPARA og enn að SPARA. hverju hefur það áorkað?  ekki neinu!  þannig er í pottinn búið að vísindum, tækni og getu manna hefur fleytt fram. með því hafa skurðaðgerðir orðið umfangsmeiri og svæfingin (sem er svo nauðsynlegt að hafa með) orðin flóknari fyrir vikið. nú getum við opnað haus og daus á fólki sem fyrir nokkrum árum var ekki hugað líf, bara vegna þess að við, tækniháskólamenntaðahjúkrunarskurðogsvæfingaliðfráháskólaíslandsoglíkaerlendisfrá erum svo vel menntuð og klár. en eitt gleymist sem hugsandi tíu ára barn væri fyrir löngu búið að gera sér grein fyrir - nýjir, flottir, flóknir hlutir kosta peninga, ef maður á ekki fyrir þeim þá eru þeir ekki í boði!

oft og mikið er búið að slá sér á brjóst í heilbrigðisráðuneyti og í efri stjórnunarstigum þessa hælis yfir því hve gott heilbrigðiskerfi okkar er - því við getum gert ótrúlegustu hluti - með ógeðslega dýru dóti, það hefur orðið til þess að við höfum þurft að spara, starfsmenn fá lúsarlaun fyrir háskólagráður í hinu og þessu, grunnþjónustan er farin til helvítis, sjúklingar sofa frammi á gangi, sjúklingar komast ekki að,  sjúklingar þurfa að borga. kerfið er farið að snúast um sjálft sig en ekki sjúklingana!

- það skilur það engin sem valdið hefur að flott og gott heilbrigðiskerfi kostar peninga -

- AF HVERJU ER ÞAÐ FL'OKIÐ AÐ SKILJA?

- HVAÐA HELVÍTIS FOKK ER ÞETTA? ER ÞETTA BESTA HEILBRIGÐISKERFI Í HEIMI?

jú, það getur verið það besta í heimi fyrir þá sem eiga skítnóg af peningum, hinir geta etið sinn eigin skít.

gleðilegt slysalaust sumar, ég kveð mína ástkæru samstarfsfélaga á skurðstofunni í fossvogi með sorg í hjarta og tár á hvarmi.


óþolandi dót

dans og söngvamyndir höfða ekki til allra. þær höfða ekki til mín, ég hata þær. oft vill fleira fara í taugarnar á mér en öðrum finnst eðlilegt. um þessar mundir eru sumir hlutir sem fara meira í taugarnar á mér en venjulega. laugardagslögin, hemmi gunn, valdís óskarsdóttir, auglýsingar frá bónus, heilbrigðisráðherra, sigmundur ernir, geðveikislega dýr barnaföt, gísli marteinn, eðlilegt fólk sem heldur að það skeri sig úr fjöldanum, björgvin halldórsson, útlendingar sem kunna ekki íslensku, íslendingar sem kunna ekki íslensku, arnþrúður karlsdóttir, vinstri grænir, davíð oddsson, ljótir bílar, snjór, hinir bílstjórarnir, vigdís finnbogadóttir, mangó, hlaupanótan, golf, stefna grunnskóla álftaness, uppskriftabækur, taumlaus skógrækt, skíðaferðir, nýji spítalinn, hausverkur, matseld, háskóli íslands, jón ólafur skarphéðinsson, útlendir afbrotamenn, vælutónlist, raunveruleikaþættir, bandið hans bubba, kaldir morgnar, korgur í kaffinu, sviðstjórar, fólk sem veit allt, jólalög, séð og heyrt, reykingarfýla, innistæðulaust kort, haffihaff, fólk sem segist þora, mosi, dýraníðingar, svertingjar með gullkeðjur, drengir í of stórum buxum, ofurhressir menn, flokkað sorp, annarra manna kettir, full bílastæði, íslenskir leikhúsleikarar í bíómyndum, útrunnin matur, skítug klósett, vísindaskáldskapur, maðurinn hennar míu farró og hún sjálf, eldhúsdagsumræður, ískur í hurðum, kastljós, íslenskt réttarkerfi, kertavax, matseld, fólk sem hrækir, kjarabarátta, átak í hinu og þessu, ódýrar lausnir, nefndir, tryggingastofnun, útvarp saga, skólahreysti, stíflað nef, fótbolti, spæsgöls, geirmundarsveifla, þynnka, falsspákonur, martraðir, sértrúasöfnuðir, kristalsljósakrónur, heilbrigðiskerfið, sparnaður, léleg tæki í vinnunni, tímahrak í vinnunni, launaskerðing, siðleysa, sjúklingar á göngum, sjúklingar að bíða, támjóir skór, lygið fólk, sjálfumglatt fólk, fólk sem kann ekki vinnuna sína, fólk sem heldur að það sé ómissandi, fostjóri spítalans, hanni stefánsson, fólk með munninn fullan af vírum, sviðstjórasleikjur og önnur ámóta djöfuls helvítis leiðindi.

hér má eflaust bæta einhverju við en ég er loftlaus akkúrat núna en enganvegin komin með óbragð í munninn. --fooookkkk


það er 21 klukkustund í endurfundi...

... og við erum ennþá í sambandi við jörðina. ég hef lokið innkaupum fyrir samkomuna sem ég stend fyrir áður en veislan sjálf hefst. við erum það sjúk í brennivín og skemmtanir að við verðum að finna fleiri ástæður en bara eina, eða (hálfa kvöldstund eins of sumum finnst) til að hittast. við höfum fyrirpartý og það verður agalega gaman. svo höfum við eftir partý líka svo það sé hægt að skemmta sér í alvöru W00t .

hvaða fokk er þetta?

 félagi minn límonaði segir á síðu sinni að sigur sé handan hornsins í júróvisjon að ári. minnug þess frá liðinni tíð að límonaði er háðfugl af hjarta og sálu, hlýt ég að taka orð hans með vissum fyrirvara. það læðist að mér grunur að fólk kunni ekki skilin á hvað sé fyndið, hlægilegt eða fáránlegt. fyndin maður er líkt og límonaði, sem kemur orðum að hlutunum þannig að það fær fólk til að hlægja hátt og dátt án þess að hann sjálfur sé aðhlátursefnið. hlutirnir í eðli sínu eru fyndnir, td er góður brandari fyndinn og þá er sá sem segir brandarann fyndinn maður. að hlægja að manni er bara dónaskapur líkt og þegar fatlaður maður dettur í drullupoll, það getur verið hlægilegt ef maður er illa innrættur, en aldrei fyndið. líonsei, haffihaff og friðarsúlan eru fyrirbæri sem eru fáránleg, það fer eftir því hvort menn eru í vondu eða góðu skapi hvort upp í hugann kemur "aðhlátur" eða bara geðvonska. oft á tíðum hefur geðvonskan vinninginn og brýst út þannig að á fólk kemur svipur vantrúar, hrista höfuðið, fá kjánahroll, menn setja í brýrnar og segja með sjálfum sér "hvaða fokk er þetta"?  við munum aldrei vinna þessa fokking keppni!!!!!!! (nema hún sé bara fyrir vitleysinga).

það eru 3 dagar í endurfundi..

   og allir að fara á límingunum, líka þeir sem ætla ekki að koma. minn kæri vinur er með mér í anda við undirbúning og tekur þátt í öllum nauðsynlegum áhyggjum sem slík uppákoma hefur í för með sér. heimilisdýrin hafa líka áhyggjur. þau vita ekki hvort þau geti verið heima eða hvort nauðsynlegt sé að þau séu viðstödd svo allt fari vel fram. verst er að geta ekki verið þeim innan handa og róað þau og fullvissað þau um að allt verði nú í lagi og engar áhyggjur að hafa. þetta verður nú bara lítið fjölskylduboð með áhangendum. þau heima trúa mér ekki og vitna í gamlar myndir sem sýna endurfundamenn eins og þeir virkilega voru, og að þeirra mati, eins og þeir eru enþá innst við beinið. þeim finnst gestalistinn ógnvænlegur og fara eins lítið úr húsi og þau komast upp með. heimilisdýrin eru þannig að alltaf er best heima, þó við förum í stuttan göngutúr að morgni er alltaf góð tilfinning á leiðinni heim og best þegar inn kemur. kvíða fer að gæta um hádegi, en þá þarf að fara út í stuttan tíma hvernig sem viðrar, svo það gæti orðið erfitt ef þau að lokum afréðu að verða að heiman næstum allan laugardaginn. ég hef reynt að ræða þetta við þau en það er eins og að tala við sjálfan sig. þau virðast skilja og eru hin blíðustu þá stundina en þegar á hólminn er komið er eins og ekkert hafi áorkast. það er næstum ákveðið að þau fara á hótel um helgina, það er svo alltaf hægt að róa öldurnar næstu daga ef þeim líður illa þegar heim kemur. á meðan nýtur minn kæri vinur aðstoðar fagaðilla í seifhás, engar áhyggjur að hafa af honum, hann verður þar minnsta kosti í 2 vikur og kemur til baka eins og nýslegin.

ekki í boði núna

æhj doldið íþyngjandi undanfarna daga - mér finnst, eins og kærum magnúsi vini mínum, að það sé heilög skylda hvers þess sem kemur sér upp blogg síðu, sé að skrifa minnst einu sinni á dag um eitthvað verulega fyndið og áhugavert. það er ekki í boði núna! 

til bjargar bændum og búaliði

hugmyndin er eiginlega stolin en þróaðist í samtali við frænku mína sem er bóndi sem líkt og aðrir bændur þurfa að borga með sér til að lifa á islandi. mér hefur alltaf runnið til rifja þegar er verið að hygla og andskotast með agalega tilgangslausar hugmyndir líkt og þegar íslendingar og fleiri jarðbúar héldu ekki vatni yfir keikó sem var bara fiskfjári með sveppasýkingu í húð. nær væri að hlúa að einhverju sem skiptir máli og gefur í aðra hönd. mjög nærtækt væri ef hver íslendingur keypti uppeldi á einni kú. kaupandinn myndi þá borga bónda fyrir daglega umhirðu, s.s. fóður, bás, heimsóknir dýralæknis, slátrun og frágang og senda mjúsiklista til sinnar kúar eða tudda sem spiluð væri fyrir skepnuna svo henni líði vel. á jólum og páskum myndi kaupandi senda sinni skepnu aukapening fyrir einhverju sem fellur til það árið. í staðinn fengi kaupandi mynd af skepnunni, heimsóknartíma og forkaupsrétt á úrvalskjöti beint frá bónda. með þessu móti yrði allt annað líf að vera bóndi og kjöt yrði töluvert ódýrara á almennum markaði. svo má auðvitað heimfæra verklagið á hvaða tegund sem er. gaman væri nú að eiga mynd að rolluskjátu í albúmi og heimsækja hana að hausti í réttum. börn hafa líka svo gott af því að komast í sveitina og sjá hvernig dýrin hafa það og hvernig allt er í raun og veru. hver man ekki eftir að hafa farið með ís í munnvikum og súkkulaði út á kinn í ryk- og reykmettuðum bíl með mömmu og pabba út í sveit til að skoða dýrin? öllum börnum langar að komast úr leikjatölvum og öðru dópi út í náttúrulegt umhverfi þar sem litlu dýrin tyggja gras, liggja á meltunni og hlaupa um og leika sér. í beinu framhaldi er eðlilegast að bjóða kaupendum að vera viðstaddir slátrun á eigin skepnu svo öll fjölskyldan viti nú hvaðan maturinn þeirra kemur. allt þetta er gott fyrir fólk á öllum aldri að gera sér grein fyrir, að bændur eru ekki fólk með útivistardellu heldur flokkur fólks sem sér borgar- og bæjarbúum fyrir nær öllu sem er ómissandi á jólum, páskum, afmælum, júróvisjonpartýum og flestum viðburðum í lífi hvers manns. auðvitað er dásemdin ekki ókeypis og þess vegna vaknaði hugmyndin um fósturtuddann.  áfram bændur!

þetta hvíta

er ekki komið nóg af þessu hvíta ógeði hér út um allt? ég hafði gaman af þessu sem krakki og efast ekki um að krakkar gleðjist nú, en þarf alltaf að gleðja þessa krakka? er ekki búið að gleðja þá í allan vetur? er ekki nóg komið? fullorðið fólk vaknar í góðri trú um að sumar sé í nánd en lendir í því að skafa snjó líkt og gert er í síberíu. það þarf vart að minnast á það að nokkrir íslendingar voru komnir á sumardekkinn og komust við illan leik til vinnu í morgun, minnsta kosti í minni vinnu Angry . við hvern er að sakast? eigum við að hringja í gvuð? en, æjji eriddikki bara allt í lagi? jújú, við látum ekkert eins og asnar og verðum snar yfir  smá sjó - ha?! ítalir eru þannig að ef rignir í einn dag eftir margra vikna sólarblíðu, þá verða þeir vitlausir í skapinu, urra á hvorn annan og eru ekki eins og menn. um leið og til sólar sést aftur verða þeir bestu vinir sinna óvina og allt fellur í ljúfa löð. þetta er bara næstum sikkópatíst ástand þarna hjá þeim Pinch . það er þannig hjá mér að ég tók þessari sjókomu með mikilli ró og hugsaði með mér hve umferðin yrði dásamlega róleg og hvít á leið í vinnu, menn gætu notið þess að hlusta útvarp og fyllt hugan af fallegum myndum þessa síðustu vetrardaga. Smile  skyndilega yrði allt fagurgrænt og ilmandi, fossvogurinn klæddist sumarskrúða og litlu sumarafleysingarenglarnir svifu um ganga spítalans og mynntu mann á að sumarfrí væri í nánd Wizard .      ég er nefnilega ekki haldin neinum fordómum og er ekki umferðardóni, né neitt pirruð á helvítis vetrinum sem er búin að vera alltof lengi og ekki fært neinum neitt nema djöfuls vesen, beinbrot á skíðum, brettum eða spariskóm ásamt ógeðslegum bensínkostnaði við að afþýða bílinn á næstum hvern morgun.  lifið heil - eða mér er alveg sama Sick

1. ógeð, 2. litlir kassar

1 - ógeð 

hvað gengur fólki til að kveikja í hesthúsum, með hestum inni í? er fólk haldið kvalarlosta eða bara mjög heimskt? maður bara er orðlaus!

æji - bara ekkert að gera í dag, förum upp í hesthús og kveikjum í W00t, já og hlustum á hrossin kveljast og brenna - já frábær hugmynd ha?

 

2 - litlir kassar

um daginn var ég í hópi fólks og barst talið að einhverjum skólabúningum og svoleiðis. einn pabbinn hafði nokkuð fyndið að leggja í umræðuna og var það á þá leið að dóttir hans á barnaskólaaldri sem skreytt er skólabúningi, velur sér nærföt á hverjum morgni að mikilli kostgæfni því þar sem allar stúlkur eru eins klæddar er metingurinn færður nær beini og þurfa nú nærfötin að standast strangari kröfur en verið hefur.

þarf þá ekki að fara að hanna skólanærföt? þegar engin klæði eru til að metast um, þá þarf að samhæfa leikföng (eða bara sleppa þeim), hárskraut og fleira skemmtilegt verður bara allt eins svo allir verði eins! þurfa þá foreldrar ekki að fara að ganga í stöðluðum fötum líka svo þeir séu allir eins líka? það þarf að útrýma hættulegum frösum barna ( pabbi minn er sterkari en pabbi þinn) og eigum við þá ekki að aka um á eins bílum (höfum það toyota hilux- svartglansandi á 38"), búa öll í eins húsum og svo mætti lengi telja - allt til að við þurfum ekki að kenna krakkarófunum okkar neitt um eðlilegheit og fjölbreytileika. það sér það hver maður að ekki gengur að taka í hnakkann á krökkum sem hafa sér til skemmtunar að hrekkja aðra vegna útlits eða klæðaburðar, það er auðveldara að steypa alla í sama mót þannig fríar maður sig mikilli ábyrgð.

öll svona óeðlilegheit minnir mig á texta með þokkabót sem fjallar um litla kassa - og allir eins!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband