Færsluflokkur: Bloggar
24.4.2008 | 12:31
GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN
GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN
PASSA SIG NÚ AÐ SLASAST EKKI - EKKI MIKIÐ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2008 | 22:54
BESTA HEILBRIGÐISKERFIÐ Í HEIMI?
brátt mun ég hætta í vinnu sem skurðhjúkrunarfræðingur á landspítala háskólasjúkrahúsi, með áköfum trega. hvers vegna að hætta þá? ef einhverntíman er tími til að hætta þá er það núna. með mikilli vissu get ég meira að segja sagt við fólk - passa sig ekki fara þarna inn þú lendir bara í veseni, því það er engin þarna inni sem getur hjálpað þér. ég er nefnilega ekki bara ein að hætta heldur níutíuogfimm skurð og svæfingahjúkrunarfræðingar líka. eftir verða uþb tíu hjúkkur á þremur skurð og svæfingadeildum stærsta spítala landsins, spítala sem heldur að hann geti allt án þess að hlutirnir kosti neitt. á mínum stutta og ágæta starfsferli á þessu hæli hef ég aldrei heyrt annað en að hér eigi að SPARA og aftur SPARA og enn að SPARA. hverju hefur það áorkað? ekki neinu! þannig er í pottinn búið að vísindum, tækni og getu manna hefur fleytt fram. með því hafa skurðaðgerðir orðið umfangsmeiri og svæfingin (sem er svo nauðsynlegt að hafa með) orðin flóknari fyrir vikið. nú getum við opnað haus og daus á fólki sem fyrir nokkrum árum var ekki hugað líf, bara vegna þess að við, tækniháskólamenntaðahjúkrunarskurðogsvæfingaliðfráháskólaíslandsoglíkaerlendisfrá erum svo vel menntuð og klár. en eitt gleymist sem hugsandi tíu ára barn væri fyrir löngu búið að gera sér grein fyrir - nýjir, flottir, flóknir hlutir kosta peninga, ef maður á ekki fyrir þeim þá eru þeir ekki í boði!
oft og mikið er búið að slá sér á brjóst í heilbrigðisráðuneyti og í efri stjórnunarstigum þessa hælis yfir því hve gott heilbrigðiskerfi okkar er - því við getum gert ótrúlegustu hluti - með ógeðslega dýru dóti, það hefur orðið til þess að við höfum þurft að spara, starfsmenn fá lúsarlaun fyrir háskólagráður í hinu og þessu, grunnþjónustan er farin til helvítis, sjúklingar sofa frammi á gangi, sjúklingar komast ekki að, sjúklingar þurfa að borga. kerfið er farið að snúast um sjálft sig en ekki sjúklingana!
- það skilur það engin sem valdið hefur að flott og gott heilbrigðiskerfi kostar peninga -
- AF HVERJU ER ÞAÐ FL'OKIÐ AÐ SKILJA?
- HVAÐA HELVÍTIS FOKK ER ÞETTA? ER ÞETTA BESTA HEILBRIGÐISKERFI Í HEIMI?
jú, það getur verið það besta í heimi fyrir þá sem eiga skítnóg af peningum, hinir geta etið sinn eigin skít.
gleðilegt slysalaust sumar, ég kveð mína ástkæru samstarfsfélaga á skurðstofunni í fossvogi með sorg í hjarta og tár á hvarmi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2008 | 19:53
óþolandi dót
dans og söngvamyndir höfða ekki til allra. þær höfða ekki til mín, ég hata þær. oft vill fleira fara í taugarnar á mér en öðrum finnst eðlilegt. um þessar mundir eru sumir hlutir sem fara meira í taugarnar á mér en venjulega. laugardagslögin, hemmi gunn, valdís óskarsdóttir, auglýsingar frá bónus, heilbrigðisráðherra, sigmundur ernir, geðveikislega dýr barnaföt, gísli marteinn, eðlilegt fólk sem heldur að það skeri sig úr fjöldanum, björgvin halldórsson, útlendingar sem kunna ekki íslensku, íslendingar sem kunna ekki íslensku, arnþrúður karlsdóttir, vinstri grænir, davíð oddsson, ljótir bílar, snjór, hinir bílstjórarnir, vigdís finnbogadóttir, mangó, hlaupanótan, golf, stefna grunnskóla álftaness, uppskriftabækur, taumlaus skógrækt, skíðaferðir, nýji spítalinn, hausverkur, matseld, háskóli íslands, jón ólafur skarphéðinsson, útlendir afbrotamenn, vælutónlist, raunveruleikaþættir, bandið hans bubba, kaldir morgnar, korgur í kaffinu, sviðstjórar, fólk sem veit allt, jólalög, séð og heyrt, reykingarfýla, innistæðulaust kort, haffihaff, fólk sem segist þora, mosi, dýraníðingar, svertingjar með gullkeðjur, drengir í of stórum buxum, ofurhressir menn, flokkað sorp, annarra manna kettir, full bílastæði, íslenskir leikhúsleikarar í bíómyndum, útrunnin matur, skítug klósett, vísindaskáldskapur, maðurinn hennar míu farró og hún sjálf, eldhúsdagsumræður, ískur í hurðum, kastljós, íslenskt réttarkerfi, kertavax, matseld, fólk sem hrækir, kjarabarátta, átak í hinu og þessu, ódýrar lausnir, nefndir, tryggingastofnun, útvarp saga, skólahreysti, stíflað nef, fótbolti, spæsgöls, geirmundarsveifla, þynnka, falsspákonur, martraðir, sértrúasöfnuðir, kristalsljósakrónur, heilbrigðiskerfið, sparnaður, léleg tæki í vinnunni, tímahrak í vinnunni, launaskerðing, siðleysa, sjúklingar á göngum, sjúklingar að bíða, támjóir skór, lygið fólk, sjálfumglatt fólk, fólk sem kann ekki vinnuna sína, fólk sem heldur að það sé ómissandi, fostjóri spítalans, hanni stefánsson, fólk með munninn fullan af vírum, sviðstjórasleikjur og önnur ámóta djöfuls helvítis leiðindi.
hér má eflaust bæta einhverju við en ég er loftlaus akkúrat núna en enganvegin komin með óbragð í munninn. --fooookkkk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2008 | 19:38
það er 21 klukkustund í endurfundi...

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2008 | 10:59
hvaða fokk er þetta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 23:27
það eru 3 dagar í endurfundi..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2008 | 23:38
ekki í boði núna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.4.2008 | 15:45
til bjargar bændum og búaliði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.4.2008 | 21:28
þetta hvíta





Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2008 | 13:05
1. ógeð, 2. litlir kassar
1 - ógeð
hvað gengur fólki til að kveikja í hesthúsum, með hestum inni í? er fólk haldið kvalarlosta eða bara mjög heimskt? maður bara er orðlaus!
æji - bara ekkert að gera í dag, förum upp í hesthús og kveikjum í , já og hlustum á hrossin kveljast og brenna - já frábær hugmynd ha?
2 - litlir kassar
um daginn var ég í hópi fólks og barst talið að einhverjum skólabúningum og svoleiðis. einn pabbinn hafði nokkuð fyndið að leggja í umræðuna og var það á þá leið að dóttir hans á barnaskólaaldri sem skreytt er skólabúningi, velur sér nærföt á hverjum morgni að mikilli kostgæfni því þar sem allar stúlkur eru eins klæddar er metingurinn færður nær beini og þurfa nú nærfötin að standast strangari kröfur en verið hefur.
þarf þá ekki að fara að hanna skólanærföt? þegar engin klæði eru til að metast um, þá þarf að samhæfa leikföng (eða bara sleppa þeim), hárskraut og fleira skemmtilegt verður bara allt eins svo allir verði eins! þurfa þá foreldrar ekki að fara að ganga í stöðluðum fötum líka svo þeir séu allir eins líka? það þarf að útrýma hættulegum frösum barna ( pabbi minn er sterkari en pabbi þinn) og eigum við þá ekki að aka um á eins bílum (höfum það toyota hilux- svartglansandi á 38"), búa öll í eins húsum og svo mætti lengi telja - allt til að við þurfum ekki að kenna krakkarófunum okkar neitt um eðlilegheit og fjölbreytileika. það sér það hver maður að ekki gengur að taka í hnakkann á krökkum sem hafa sér til skemmtunar að hrekkja aðra vegna útlits eða klæðaburðar, það er auðveldara að steypa alla í sama mót þannig fríar maður sig mikilli ábyrgð.
öll svona óeðlilegheit minnir mig á texta með þokkabót sem fjallar um litla kassa - og allir eins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)