grein í mogganum í dag

ég hef ekki áttað mig á því hvernig ég fæ slóðina á fréttum á síðuna en greinin er á bls 8 í mogga dagsins og skýrir í stuttu máli sem kom frá mér í belg og biðu í gær. hún er skrifuð af trúnaðarmanni skurðhjúkrunarfræðinga á lsh í fossvogi. ég hefði bætt við greinina að anna stefáns (sem heima hjá mér er kölluð hanni stefánsson) er ekkert inni í málum og sést það og heyrist af tali hennar og rugli varðandi vinnuvernd og ESB.

minni fólk aftur á það neyðarástand sem skapast á öllum spítalanum (fossvogi, hringbraut og kvennadeild)  þ. 1 mai nk. og að geislafræðingar eru líka að hætta svo það verður líka neyðarástand á slysó og bráðamóttökunni hringbraut, þar verður ekki hægt að taka röntgenmyndir

passið ykkur og haldið ykkur heima!

kv d


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

vona að samstaðan haldi

Hólmdís Hjartardóttir, 25.4.2008 kl. 13:05

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ég dáist af ykkur, kollegum mínum, vona að samstaðan haldist. Ég er viss um að stéttin er öll á bak við ykkur.

Ef þú vilt setja inn frétt, þá býðst þér sá möguleiki með því að klikka á kassa við hliðina sem stendur á ,,blogga um frétt". Þar gefur þú upp þína slóð og eftir það er þetta imbaproof. Er nýbúin að uppgötva þetta sjálf 

Baráttuvkeðjur

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 26.4.2008 kl. 00:18

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Það verður þá að vera frétt á mbl.is :)

Baráttukveðjur!!! 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.4.2008 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband